Hvað við geymum. Þegar þú pantar geymum við nafn, netfang, síma, kennitölu (ef krafa er stofnuð) og heimilisfang, ásamt pöntuninni sjálfri. Þetta þurfum við til að afgreiða pöntunina, gefa út reikning og uppfylla bókhaldslög.
Kortaupplýsingar. Við sjáum aldrei kortanúmerið þitt — greiðslan fer fram á greiðslusíðu Teya Iceland hf. (kt. 440686-1259), sem er íslenskt fjármálafyrirtæki undir eftirliti Seðlabanka Íslands og PCI DSS-vottað.
Hvar. Gögn eru geymd á þjónum Hostinger International Ltd. innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Hverjum við deilum með. Teya (kortagreiðslur), Pósturinn (sendingar á vörum), bókara okkar. Aldrei seld þriðja aðila.
Vefkökur. Þessi vefur notar aðeins nauðsynlega vefköku fyrir körfuna. Engin auglýsingamæling.
Réttindi þín. Þú getur beðið um afrit af gögnunum þínum eða eyðingu þeirra á smartvefur@gmail.com. Bókhaldsgögn (reikningar) geymum við í 7 ár samkvæmt lögum.
Ábyrgðaraðili: SmartVefur ehf., kt. 580225-2090, Eskifjörður.