SmartVefur ehf. var stofnað í febrúar 2025 af Fannari Hafsteinssyni. Bakgrunnurinn er ekki úr tölvunarfræði heldur úr fiskvinnslu, rafvirkjun og vélum — og það mótar hvernig við hugsum: kerfi eiga að virka á gólfinu, í bílnum og í símanum, ekki bara í fundarherbergi.
Fyrsta stóra varan var VerktakaNet, rekstrarkerfi fyrir verktaka, sem varð til af því að okkur vantaði það sjálf. Síðan hafa bæst við MatarPöntun, Taktvís og fjöldi vefsíðna og sérlausna fyrir fyrirtæki um allt land.
Við erum lítil. Það þýðir að sami maðurinn sem smíðaði kerfið svarar þegar þú hringir — og að við segjum nei við verkefnum sem við ráðum ekki við.