Viðhald

Einhver sem passar vefinn — svo þú þurfir þess ekki

WordPress-vefur sem enginn uppfærir verður hægur, brotnar eða er brotist inn á. Við uppfærum, tökum afrit, fylgjumst með og lögum það sem bilar. Þú heldur hýsingunni þinni eða flytur til okkar — hvort sem hentar.

Vikulegar öryggisuppfærslurAfrit fyrir hverja uppfærsluLagfæringar innifaldarEngin binding
Vefsíða Rafmagnsverkstæðis Andrésar
Innifalið

Hvað gerum við fyrir þig?

🔄Uppfærslur í hverri viku

WordPress, þema og viðbætur uppfærð vikulega. Við prófum vefinn eftir hverja uppfærslu.

💾Afrit áður en nokkuð er gert

Afrit af skrám og gagnagrunni fyrir hverja uppfærslu og daglega. Ef eitthvað fer úrskeiðis snúum við til baka.

👀Eftirlit með uppitíma og öryggi

Við fáum tilkynningu ef vefurinn dettur út eða ef þekkt öryggisgalli finnst í viðbót sem þú notar.

🧰Lagfæringar þegar eitthvað brotnar

Hvít síða, villa eftir uppfærslu, form sem hætti að senda — við lögum það, án aukareiknings.

✏️Klukkustund af breytingum á mánuði

Nýr texti, mynd, verð eða opnunartími. Sendu okkur póst og það er komið inn.

📈Hraði og Google

Við fylgjumst með hleðslutíma og látum þig vita ef eitthvað dregur vefinn niður í leitarniðurstöðum.

Verð

Eitt verð, engin binding

Mánaðarverð án VSK. Þú getur sagt upp hvenær sem er.

Viðhald á vef sem er annars staðar

Þú heldur núverandi hýsingu

4.900 kr./mán
  • Öryggisuppfærslur og eftirlit vikulega
  • Afrit fyrir hverja uppfærslu
  • Lagfæringar ef eitthvað brotnar
  • Allt að 1 klst af breytingum á mánuði
Panta viðhald
Betra verð

Smart Business

Hýsing og viðhald saman

6.000 kr./mán
  • Hýsing í eigin umhverfi með SSL
  • Dagleg afrit og öryggisuppfærslur
  • Allt að 2 klst af breytingum á mánuði
  • Mánaðarleg skýrsla um heimsóknir og Google
  • Flutningur innifalinn
Sjá hýsingu
Algeng vandamál

Þekkir þú þetta?

Þetta eru algengustu ástæðurnar fyrir því að fyrirtæki hafa samband við okkur.

⚠️„Vefurinn er bara hvít síða“

Viðbót sem var uppfærð passar ekki lengur við þema eða PHP-útgáfu. Við finnum sökudólginn og lögum.

🐌„Vefurinn er orðinn svo hægur“

Gamlar viðbætur, óþjappaðar myndir og engin skyndiminnsla. Við mælum og lögum það sem skiptir máli.

🔓„Það var brotist inn á vefinn“

Úrelt WordPress eða viðbót með öryggisgalla. Við hreinsum, uppfærum og lokum gatinu.

📧„Formið hætti að senda póst“

Hýsingar loka oft fyrir póstsendingar án þess að láta vita. Við setjum upp örugga póstsendingu.

Spurningar

Algengar spurningar

Þarf ég að flytja vefinn til ykkar?

Nei. Viðhaldið virkar á WordPress-vef hvar sem hann er hýstur — við þurfum bara aðgang að stjórnborði WordPress og helst að hýsingunni. Ef þú vilt flytja til okkar síðar er flutningurinn innifalinn.

Hvað gerist ef vefurinn brotnar við uppfærslu?

Við tökum afrit fyrir hverja uppfærslu og snúum til baka um leið ef eitthvað fer úrskeiðis. Síðan finnum við orsökina og lögum hana. Það er innifalið.

Hvað telst klukkustund af breytingum?

Nýr texti, myndir, verð, opnunartímar, ný síða með sama útliti, nýtt form. Stærri verk, eins og nýtt útlit eða ný virkni, eru unnin á tímagjaldi eða með tilboði.

Hversu fljótt svarið þið?

Innan eins virks dags. Ef vefurinn er niðri er það forgangsmál og við byrjum samdægurs.

Er binding?

Nei. Mánaðarleg greiðsla og þú getur sagt upp hvenær sem er.

Hættu að hafa áhyggjur af vefnum

Pantaðu viðhald og sendu okkur aðgang. Við byrjum á úttekt og fyrstu uppfærslu sama dag.

Tengt: