WordPress-hýsing

WordPress-hýsing sem sér um sig sjálf

Hver vefur keyrir í sínu eigin, aðskilda umhverfi með SSL, daglegum afritum og öryggisuppfærslum. Þú færð stjórnborð þar sem WordPress er sett upp með einum smelli, og við flytjum vefinn þinn frá núverandi hýsingu án gjalds.

Flutningur innifalinnSSL og dagleg afritEngin bindingSvar innan eins virks dags
Stjórnborð SmartVefur hýsingar
Verð

Þrír pakkar — engin binding

Mánaðarverð án VSK. Þú getur sagt upp hvenær sem er.

Smart Start

Fyrir eina vefsíðu

3.900 kr./mán
  • Eigið umhverfi, 10 GB pláss
  • WordPress á íslensku með einum smelli
  • SSL-skírteini innifalið
  • Dagleg afrit, geymd í 14 daga
  • Öryggisuppfærslur á WordPress og viðbótum
  • Svar innan eins virks dags
Panta Smart Start
Vinsælast

Smart Business

Hýsing + við sjáum um breytingar

6.000 kr./mán
  • Allt í Smart Start, 25 GB pláss
  • Allt að 2 klst af efnisbreytingum á mánuði
  • Mánaðarleg skýrsla um heimsóknir og Google-stöðu
  • Hraðabestun og eftirlit með uppitíma
  • Svar samdægurs
Panta Smart Business

Smart Pro

Vefverslanir og mikil umferð

12.900 kr./mán
  • Allt í Smart Business, 75 GB pláss
  • Allt að 5 klst af breytingum og þróun á mánuði
  • Allt að 3 vefsíður og lén
  • Vöktun allan sólarhringinn
  • Forgangur í þjónustu
Panta Smart Pro
Stjórnborðið

Allt sem þú þarft, á einum stað

Þú færð þitt eigið stjórnborð um leið og greiðsla berst. Ekkert tæknimál.

🅦WordPress með einum smelli

Uppsett á íslensku, með réttu tímabelti og tilbúið til notkunar á innan við mínútu.

🌐Lén og SSL sjálfkrafa

Tengdu lénið þitt með einni A-færslu. SSL-skírteini kemur sjálfkrafa um leið og lénið vísar á vefinn.

📁Skráastjóri og SFTP

Hlaða upp, breyta og sækja skrár í vafranum, eða tengjast með FileZilla.

🗄️Gagnagrunnar og phpMyAdmin

MariaDB-gagnagrunnar fyrir WordPress og önnur forrit, með phpMyAdmin.

💾Afrit og endurheimt

Afrit á hverri nóttu. Þú getur tekið afrit sjálfur, sótt það eða endurheimt vefinn með einum smelli.

🔗Undirlén, PHP og cron

Undirlén með eigin möppu, PHP-stillingar, tímastýrð verk og tölfræði um heimsóknir.

Af hverju við

Hýsing sem er öðruvísi

🧱Eigið umhverfi fyrir hvern vef

Flest ódýr hýsing setur hundruð vefja á sama þjón. Hjá okkur keyrir hver vefur í sínu eigin, aðskilda umhverfi með tryggðu minni og örgjörva.

🚚Við flytjum vefinn frítt

Sendu okkur aðgang að núverandi hýsingu og við flytjum vefinn, lénið og tölvupóstinn án þess að vefurinn detti út.

🛡️Öryggi er innifalið

Öryggisuppfærslur á WordPress og viðbótum, eldveggur og vöktun. Ef eitthvað brotnar lögum við það.

🇮🇸Íslensk þjónusta

Þú talar við þann sem rekur þjóninn, á íslensku, og færð svar innan eins virks dags.

Spurningar

Algengar spurningar

Hvernig flyt ég vefinn minn til ykkar?

Þú pantar pakka og sendir okkur aðgang að núverandi hýsingu (eða afrit af vefnum). Við flytjum vefinn, prófum hann á bráðabirgðaveffangi og færum lénið yfir þegar allt er tilbúið. Vefurinn dettur ekki út á meðan. Flutningurinn er innifalinn.

Er tölvupóstur innifalinn?

Vefhýsingin er fyrir vefinn. Fyrir pósthólf á þínu léni (t.d. jon@fyrirtaeki.is) mælum við með Zoho Mail eða Google Workspace og við hjálpum þér að setja það upp. Tölvupóstur sem vefurinn sendir (samskiptaform, pantanir) virkar sjálfkrafa.

Hvar eru þjónarnir?

Í Evrópu. Gögnin þín eru geymd innan Evrópu og við flytjum þau aldrei út fyrir hana.

Get ég hýst annað en WordPress?

Já. Umhverfið keyrir PHP 8.3 og MariaDB, svo flest PHP-kerfi virka. Þú getur líka hlaðið upp kyrrstæðum vef með skráastjóranum eða SFTP.

Hvað ef vefurinn verður of stór fyrir pakkann?

Þú færð tilkynningu og getur uppfært í stærri pakka með einum smelli. Ekkert dettur út.

Er binding?

Nei. Þú greiðir mánaðarlega og getur sagt upp hvenær sem er. Við afhendum þér afrit af vefnum ef þú ferð.

Flytjum vefinn þinn í dag

Pantaðu pakka og sendu okkur aðgang að núverandi hýsingu. Við sjáum um restina.

Tengt: